innri vefur
Sjá nánar
6.6.2001

Álftanesvegur og Vífilsstaðavegur í Garðabæ

Í mars árið 2000 var frummat á umhverfisáhrifum Álftanesvegar lagt fram til Skipulagsstofnunar.

Kynntar voru þrjár leiðir, A, B og C, þar sem leið A var sú veglína sem sóst

var eftir (mynd 1). Fyrirhuguð lega Álftanesvegar er frá Hafnarfjarðarvegi, um Engidal að

gatnamótum fyrirhugaðs Vífilsstaðavegar í Garðahrauni. Þaðan áfram yfir Garðahraun, að og

með hringtorgi nálægt núverandi gatnamótum að Bessastöðum í Bessastaðahreppi.

Matsskýrslan náði yfir þessa vegagerð auk tengivega við núverandi vegakerfi.

Frummatsskýrslan var unnin samkvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum og

var kveðinn upp úrskurður þann 7. júní 2000. Í úrskurðinum var fallist á leiðir B og C með

nokkrum skilyrðum, en farið fram á ?frekara mat á umhverfisáhrifum Álftanesvegar

samkvæmt leið A þar sem gerð sé nánari grein fyrir áhrifum framkvæmdarinnar á

jarðmyndanir, landslag, gróður, fuglalíf, menningarminjar og útivist." Í nýrri matsskýrslu

verður kynnt ný veglína fyrir Álftanesveg, nokkurs konar ,,sáttaleið", sem er á milli leiða A

og B og kallast leið D. Lega leiðar D er frábrugðin áður samþykktri veglínu B á milli

punktanna X og Y á mynd 2.

Í frummatsskýrslunni voru ekki metin áhrif Vífilsstaðavegar sem er fyrirhugaður frá

hringtorgi við rætur Hraunsholts í suðvestur yfir hraunið að Bala sunnan við Garðaholt, enda

ekki um matsskylda framkvæmd að ræða skv. eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum.

Vífilsstaðavegur flokkast sem tengibraut í þéttbýli, en samkvæmt nýjum lögum um mat á

umhverfisáhrifum (nr. 106/2000) ber að tilkynna slíkar framkvæmdir til Skipulagsstofnunnar,

sem ákvarðar matsskyldu. Skipulagsstofnun úrskurðaði 8. september 2000 að Vífilstaðavegur

væri einnig matsskyld framkvæmd.

Þar sem Álftanesvegur og Vífilsstaðavegur eru tengdar framkvæmdir hefur verið ákveðið að

leggja fram eina matsskýrslu fyrir báðar veglínurnar. Álftanesvegur mun því ekki verða

metinn sérstaklega í frekara mati. Þess í stað mun úrskurður skipulagsstjóra sem minnst er á

hér að ofan verða lagður til grundvallar í sameiginlegri matsskýrslu beggja veganna. Í þeirri

matsáætlun, sem hér er lögð fram samkvæmt lögum nr. 106/2000, er greint frá áhersluþáttum

framkvæmda og umhverfis í fyrirhugaðri matsskýrslu auk kynningar og samráðs á

fyrirhugaðri framkvæmd og matsferlinu.

Hönnun hf. mun vinna skýrsluna fyrir Vegagerðina og Garðabæ og er tímaáætlun verkefnisins

eftirfarandi:

 

  • Matsáætlun kynnt og lögð fram júní 2001
  • Matsskýrsla auglýst sept 2001
  • Úrskurður Skipulagsstofnunar nóvember 2001
  • Framkvæmdir 2002-2003

 

Mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun