Sjá nánar
19.12.2007
Háspennulínur (245 kV) frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík
Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Þingeyjarsveit og Norðurþing.
Drög að tillögu að matsáætlun

Landsnet hf. hefur hafið mat á umhverfisáhrifum byggingu tveggja 245 kV háspennulína frá fyrirhuguðum virkjununum á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum að Bakka við Húsavík. Háspennulínurnar munu liggja um sveitarfélögin Skútustaðahrepp, Aðaldælahrepp, Þingeyjarsveit og Norðurþing, um 60 km leið.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningi gefst kostur á kynna sér þessi drög og koma með athugasemdir í tengslum við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar til þriðjudags 8. janúar 2008. Hægt er að senda inn athugasemdir með tölvupósti á netföngin
axel@vgkhonnun.is og
arnije@landsnet.is.
Drög að tillögu að matsáætlun