Sjá nánar
8.2.2008
Efnistaka úr Vatnsskarðsnámum
Hafið er matsferli vegna efnistöku úr Vatnsskarðsnámum við Krýsuvíkurveg þar sem efnistaka hefur farið fram um áratuga skeið. Áætlanir eru uppi um að hægt verði að stunda efnistöku í Vatnsskarðsnámum til að minnsta kosti næstu 25 ára. Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námanna.
Alexander Ólafsson ehf. er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af VGK-Hönnun hf.
Almenningi gefst nú kostur á að kynna sér þessi drög og koma ábendingum og athugasemdum á framfæri til Hauks Einarssonar (VGK-Hönnun hf., Grensásvegi 1, 108 Reykjavík, haukur@vgkhonnun.is).
Tillaga að matsáætlun - drög
Kynningartími er til 22. febrúar 2008.