14.3.2008

EFNISTAKA ÚR HÁUHNÚKUM VIÐ VATNSSKARÐ Í GRINDAVÍKURBÆ (VATNSSKARÐSNÁMA)

Hafið er matsferli vegna efnistöku úr Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg þar sem efnistaka hefur farið fram um áratuga skeið. Áætlanir eru uppi um að hægt verði að stunda efnistöku í Vatnsskarðsnámu til að minnsta kosti næstu 25 ára. Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námanna.


Alexander Ólafsson ehf. er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af VGK-Hönnun hf. Tillaga að matsáætlun er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun næstu 4 vikurnar eða til 14. apríl 2008 og má nálgast tillöguna hér.

Tillaga að matsáætlun