Sjá nánar
30.7.2008
Blöndulína 3 (220 kV) Frá Blöndustöð til Akureyrar
Mat á umhverfisáhrifum
Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Hörgárbyggð og Akureyrarkaupstaður.
Drög að tillögu að matsáætlun
Landsnet hf. hefur hafið undirbúning að lagningu 220 kV háspennulínu frá Blöndu til Akureyrar (Blöndulína 3). Um er að ræða fyrsta áfangann í styrkingu/tvöföldun á byggðalínuhringnum. Blöndulína 3 mun liggja um Húnavatnshrepp, Sveitarfélagið Skagafjörð, Akrahrepp, Hörgárbyggð og Akureyrarkaupstað, um 110 km leið. Hlutaðeigandi sveitarfélögum hefur verið kynnt áform um línuleiðir og eru þær til skipulagslegrar meðferðar hjá sveitarfélögunum.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.
Drög að tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar eru nú til kynningar á vef¬síðunum www.landsnet.is og www.mannvit.is. Óskað er eftir athuga-semdum og ábendingum við drögin fyrir 18. ágúst nk. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum á netfangið axel@mannvit.is eða á neðangreint póstfang.
Axel Valur Birgisson
Mannvit verkfræðistofa
Laugavegi 178 – 105 Reykjavík
Drög að tillögu að matsáætlun