Sjá nánar
1.8.2008
EFNISTAKA ÚR LAMBAFELLI Í LANDI BREIÐABÓLSSTAÐAR, SVEITARFÉLAGINU ÖLFUSI

Hafið er matsferli vegna efnistöku úr Lambafelli í landi Breiðabólsstaðar. Náman er í landi Sveitarfélagsins Ölfuss, við Þrengslaveg, þar sem efnistaka hefur farið fram um áratuga skeið. Áætlanir eru uppi um að hægt verði að stunda efnistöku í námunni til að minnsta kosti næstu 30 ára. Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námanna.
Hlíðardalsskóli ehf. er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af Mannvit verkfræðistofu Tillaga að matsáætlun er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun og má nálgast tillöguna hér.
Tillaga að matsáætlun