Sjá nánar
15.10.2008
Blöndulína 3 (220 kV) Frá Blöndustöð til Akureyrar
220 kV háspennulína frá Blöndustöð til Akureyrar
(Blöndulína 3). Mat á umhverfisáhrifum.
Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Akrahreppur, Hörgárbyggð og Akureyrarkaupstaður.
Tillaga að matsáætlun
Landsnet hf. hefur hafið undirbúning að lagningu 220 kV háspennulínu frá Blöndu til Akureyrar (Blöndulína 3). Um er að ræða fyrsta áfangann í styrkingu/tvöföldun á byggðalínuhringnum. Blöndulína 3 mun liggja um Húnavatnshrepp, Sveitarfélagið Skagafjörð, Akrahrepp, Hörgárbyggð og Akureyrarkaupstað, um 110 km leið. Flutningsleið raforku á svæðinu hefur verið skilgreind í stórum dráttum og hlutaðeigandi sveitarfélögum verið kynnt þau áform.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum. Fyrsta stig þess undirbúnings er nú þegar hafið en fyrr í sumar voru drög að tillögu að matsáætlun kynnt.
Tillaga Landsnets að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum hefur nú verið send Skipulagsstofnun til meðferðar. Tillagan er aðgengileg á heimasíðum Landsnets (www.landsnet.is) og Mannvits verkfræðistofu (www.mannvit.is). Allir geta kynnt sé tillöguna og lagt fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar Laugavegi 166 í Reykjavík á tímabilinu frá 17. október til 3. nóvember 2008. Hægt er að óska eftir eintökum af tillögunni hjá Skipulagsstofnun.
Tillaga að matsáætlun 2,5 mb
Tillaga að matsáætlun 17 mb