innri vefur
Sjá nánar
7.11.2008

Rannsóknaboranir við Kröflu í Skútustaðahreppi

Drög að tillögu að matsáætlun


Landsvirkjun áformar að bora allt að fjórar rannsóknaholur við Kröflu, í Skútustaðahreppi.

Í 6. gr. og 2. viðauka, tl. 2 c i, í lögum nr. 106/2000 m.s.b., um mat á umhverfisáhrifum, kemur fram að djúpborun og þar með talin borun rannsóknahola á háhitasvæðum, sé tilkynningarskyld framkvæmd. Í ljósi aðstæðna óskaði Landsvirkjun hins vegar eftir því að fara með fyrirhugaðar rannsóknaboranir beint í mat á umhverfisáhrifum skv. IV. kafla laganna og hefur Skipulagsstofnun fallist á þá málsmeðferð.

Matsvinnan er hafin og hér á síðunni má nálgast drög að tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum til Alberts Guðmundssonar, á netfangið albert@lvp.is með afriti til Hauks Einarssonar, á netfangið haukur@mannvit.is.

Frestur til að gera athugasemdir er til 26. nóvember 2008.

Tillaga að matsáætlun 2,2 mb
Tillaga að matsáætlun 9,9 mb