Sjá nánar
7.11.2008
Rannsóknaboranir á Þeistareykjum í Þingeyjarsveit
Drög að tillögu að matsáætlun
Þeistareykir ehf. áforma að bora allt að fjórar rannsóknaholur á Þeistareykjum í Þingeyjarsveit, í Þingeyjarsýslu.
Í 6. gr. og 2. viðauka, tl. 2 c i, í lögum nr. 106/2000 m.s.b., um mat á umhverfisáhrifum, kemur fram að djúpborun og þar með talin borun rannsóknahola á háhitasvæðum, sé tilkynningarskyld framkvæmd. Í ljósi aðstæðna óskuðu Þeistareykir ehf. hins vegar eftir því að fara með fyrirhugaðar rannsóknaboranir beint í mat á umhverfisáhrifum skv. IV. kafla laganna og hefur Skipulagsstofnun fallist á þá málsmeðferð.
Matsvinnan er hafin og hér á síðunni má nálgast drög að tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum til Alberts Guðmundssonar, á netfangið albert@lvp.is með afriti til Auðar Andrésdóttur, á netfangið audur@mannvit.is.
Frestur til að gera athugasemdir er til 26. nóvember 2008.
Drög að tillögu að matsáætlun 2,2 mb
Drög að tillögu að matsáætlun 5,5 mb