Sjá nánar
19.12.2008
Rannsóknaboranir við Kröflu í Skútustaðahreppi
Tillaga að matsáætlun
Landsvirkjun áformar að bora allt að fjórar rannsóknaholur við Kröflu, í Skútustaðahreppi.
Í
6. gr. og 2. viðauka, tl. 2 c i, í lögum nr. 106/2000 m.s.b., um mat á
umhverfisáhrifum, kemur fram að djúpborun og þar með talin borun
rannsóknahola á háhitasvæðum, sé tilkynningarskyld framkvæmd. Í ljósi
aðstæðna óskaði Landsvirkjun hins vegar eftir því að fara með
fyrirhugaðar rannsóknaboranir beint í mat á umhverfisáhrifum skv. IV.
kafla laganna og hefur Skipulagsstofnun fallist á þá málsmeðferð.
Matsvinnan
er hafin og hér á síðunni má nálgast tillögu að matsáætlun vegna
rannsóknaborana. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og
framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða
fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt
verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna
mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir.
Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166 í Reykjavík. Frestur til að gera athugasemdir er til 14.
janúar 2009.
Tillaga að matsáætlun