innri vefur
Sjá nánar
19.12.2008

Rannsóknaboranir í Gjástykki í Þingeyjarsveit

Tillaga að matsáætlun

Landsvirkjun áformar rannsóknaboranir í Gjástykki, í Þingeyjarsveit. Rannsóknirnar eru nauðsynlegur liður í öflun upplýsinga um hvort vinnanlegan jarðhita sé þar að finna.

Í 6. gr. og 2. viðauka, tl. 2 c i, í lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, kemur fram að djúpborun og þar með talin borun rannsóknahola á háhitasvæðum, sé tilkynningarskyld framkvæmd. Framkvæmdin er háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar í júlí 2008. Landsvirkjun hefur ákveðið að meta umhverfisáhrif af borun allt að þriggja hola á sama borteig.

Matsvinnan er hafin og hér á síðunni má nálgast tillögu að matsáætlun vegna rannsóknaborana. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir.

Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.  Frestur til að gera athugasemdir er til 14. janúar 2009.


Tillaga að matsáætlun