innri vefur
Sjá nánar
1.12.2001

Vikurnám á Mýrdalssandi, Mýrdalshrepp

 

Árið 1998 var stofnað hlutafélag, Kötluvikur ehf., sem hefur það að markmiði að undirbúa nám Kötluvikurs á Mýrdalssandi til iðnaðarframleiðslu. Samhliða vikurnámi er fyrirhugað að reisa verksmiðju í Vík í Mýrdal þar sem vikurinn verður þurrkaður og þaninn, í þar til gerðum ofnum, og hann flokkaður eftir kornastærð og komið fyrir í sekkjum fyrir erlendan markað.

 

Fyrirhugað vikurnám fellur undir 5. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, 1. viðauka, lið 21 og er þar af leiðandi matsskyld framkvæmd. Tillaga þessi er unnin í samræmi við ofangreind lög ásamt reglugerð nr. 671/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Eins er tekið mið af lögum nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu og reglugerð nr. 514/1995 um vinnslu og nýtingu vikurs.

 

Hér á eftir er stutt kynning á fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu.

Staðháttum á framkvæmdasvæði er lýst, svo og helstu umhverfis- og skipulagsþáttum. Stuttlega er greint frá rannsóknum sem gerðar hafa verið á svæðinu og þeim athugunum sem gerðar verða í tengslum við matsvinnuna. Í lokin verður farið yfir hvernig kynningu og samráði var háttað við gerð

tillögu að matsáætlun og hvernig því verður háttað við gerð matsskýrslu.

 

Til að geta skoðað skýrslu og viðauka þarf Acrobat Reader, ókeypis tilfang, sem hægt er að nálgast með því að smella hér.

 

SKÝRSLAN (224 KB)

 

KORT

 

Kort1 Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæði.
Kort2 Fyrirhugað námusvæði.