21.1.2009

Nýting jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun


Drög að tillögu að matsáætlun


Orkuveitan áformar nýtingu jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun, í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Framkvæmdin er matsskyld skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og hér á síðunni má nálgast drög að tillögu að matsáætlun. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.

Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum til Jónu Bjarnadóttur.

Frestur til að gera athugasemdir er til 6. febrúar 2009.

Drög að tillögu að matsáætlun