4.3.2002

Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði, Bjólfssvæði

Seyðisfjarðarkaupstaður sem framkvæmdaraðili leggur hér fram tillögu að matsáætlun um fyrirhugaðar varnir gegn snjóflóðum úr austurhlíð Bjólfs á Seyðisfirði. Áætlað er að gera snjóflóðavarnargarð þar sem heitir Brún í Bjólfi og er framkvæmdasvæðið í u.þ.b. 650 - 680 m h.y.s.. Framkvæmdin er hluti af áætlun sem miðar að því að bæta varnir og minnka hættu á snjóflóðum fyrir byggðina þar sem heitir Aldan og Bakkahverfi. Varnargarðurinn mun ekki einn og sér veita ásættanlegt öryggi fyrir Ölduna og Bakkahverfi, því hann mun draga úr tíðni og afli snjóflóða með upptök í efri hluta Bjólfsins, en hefur ekki áhrif á snjóflóð sem eiga upptök úr hlíð Bjólfs neðan Brúnar. Því verður að líta á varnargarð á Brún sem upphaf að aðgerðum er miði að því að veita ásættanlegt öryggi fyrir Öldu og Bakkahverfi.

 

Til að geta skoðað skýrslu og viðauka þarf Acrobat Reader, ókeypis tilfang, sem hægt er að nálgast með því að smella hér.

 

SKÝRSLAN (492 KB)

 

MYNDASKRÁ


Mynd1 Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæði fyrir snjóflóðavarnir og vegslóða Seyðisfirði, Bjólfssvæði. Verkfræðistofa Austurlands 8.10 2001. Mælikvarði 1:20.000 (A4).
Mynd2 Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæði Brún í Bjólfi. Sýndir eru tveir möguleikar á þvergarði 300 m og 450 m. Einnig er afmarkað líklegt svæði sem raskast og svæði sem garðurinn mun líklega verja. Verkfræðistofa Austurlands x.2 2002. Mælikvarði 1:5.000 (A3).
Mynd3 Bréf frá Skipulagsstofnun dags. 21.8 2001, varðandi matsskyldu vegslóða að Brún í Bjólfi Seyðisfirði.