19.2.2009

Sameiginlegt mat - álver, jarðhitavirkjanir og háspennulínur

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum


Drög að tillögu að matsáætlun


Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.  Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.

Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra verður skilað inn til Skipulagsstofnunar samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II.  Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.

Matsvinnan er hafin og má nálgast drög að tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér á síðunni.  Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar.  .  Hægt er að senda athugasemdir og ábendingar á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netföngin rb@mannvit.is og albert@lvp.is:

Mannvit hf.
b.t. Rúnars D. Bjarnasonar
Grensásvegi 1
108 Reykjavík

Frestur til að gera athugasemdir er til 6. mars 2009.


Drög að tillögu að matsáætlun sameiginlega matsins


Tillögur að matsáætlunum framkvæmdanna fjögurra má nálgast hér:
Álver Alcoa á Bakka
Þeistareykjavirkjun
Kröfluvirkjun II
Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík