innri vefur
Sjá nánar
19.2.2009

Mat á umhverfisáhrifum Þeistareykjavirkjunar

Drög að tillögu að matsáætlun


Þeistareykir ehf. áforma að reisa allt að 200 MWe jarðhitavirkjun á Þeistareykjum í Þingeyjarsveit og Norðurþingi, í Þingeyjarsýslu.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og má nálgast drög að tillögu að matsáætlun hér á síðunni. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum. Þeistareykir ehf. höfðu áður lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir allt að 150 MWe virkjun, sem var dregin til baka 6. nóvember 2008.

Allir hafa rétt til að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Vinsamlegast beinið fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netföngin albert@lvp.is og audur@mannvit.is.  

Landsvirkjun
b.t. Alberts Guðmundssonar
Háaleitisbraut 68
103 Reykjavík

Frestur til að gera athugasemdir er til 6. mars 2009.


Drög að tillögu að matsáætlun Þeistareykjavirkjunar