20.5.2003

Bjarnarflagsvirkjun og Bjarnarflagslína 1

Landsvirkjun ráðgerir að reisa í áföngum allt að 90 MW jarðvarmavirkjun, Bjarnarflagsvirkjun, í Bjarnarflagi í Skútustaðahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Hver áfangi yrði af stærðinni 20-40 MW. Ákvarðanir um áfangastækkanir virkjunarinnar ráðast af viðbrögðum jarðhitakerfisins við orkuvinnslunni og áhrifum fyrri áfanga á umhverfið. Orkugeta hvers áfanga er áætluð 160-320 GWh á ári, samsvarandi 8.100 klukkustunda rekstrartíma á fullu afli. Auk virkjunarinnar er fyrirhugað að leggja 132 kV háspennulínu, Bjarnarflagslínu 1, frá Bjarnarflagsstöð að Kröflustöð til að tengja virkjunina raforkuflutningskerfi Landsvirkjunar. Þrír staðsetningarkostir fyrir stöðvarhús og önnur mannvirki virkjunarinnar verða skoðaðir og bornir saman í matsskýrslunni.

 

Skýrslan í heild:

 

Tillaga að matsáætlun Bjarnarflagsvirkjunar  (1 MB-pdf skjal).