1.1.0001 13.12.11

Breytt tilhögun á urðun úrgangs að Strönd í Rangárvallasýslu

Drög að tillögu að matsáætlun
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. fyrirhugar breytingar á tilhögun urðunar úrgangs í landi Strandar í Rangárþingi ytra í samvinnu við Sorpstöð Suðurlands.  Til skoðunar er að taka þar til urðunar heimilisúrgang frá Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. og Sorpstöð Suðurlands bs. sem í dag er fluttur til urðunar í Álfsnes í Reykjavík.  Í dag starfar sorpstöðin samkvæmt starfsleyfi Umhverfisstofnunar sem kveður á um meðhöndlun á allt að 5.200 tonnum af úrgangi árlega, þar af eru móttekin um 3.700 tonnum til urðunar að Strönd.  Magn til urðunar myndi aukast ef til breytingarinnar kemur um allt að 7.000 tonnum á ári. 

 

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt 1. viðauka laga nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.  Matsvinnan er hafin og hægt er að nálgast drög að tillögu að matsáætlun hér að neðan.

 

Almenningi gefst kostur á kynna sér þessi drög á framangreindri vefsíðu og setja fram athugasemdir í tengslum við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar fram til 6. janúar 2012.  Hægt er að senda athugasemdir bréfleiðis á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netfangið axel@mannvit.is.

 

Mannvit hf.

Axel Valur Birgirsson

Grensásvegi 11

108 Reykjavík

 

Drög að tillögu að matsáætlun.pdf