Kynning á tillögu að matsáætlun
Hafið er mat á umhverfisáhrifum vegna Búlandsvirkjunar í Skaftárhreppi. Um er að ræða allt að 150 MW vatnsaflsvirkjun.
Suðurorka er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af Mannviti. Í tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd lýst og fjallað umþá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í mati á umhverfisáhrifum. Einnig er greint frá því hvaða gögn eru fyrir hendi og verða nýtt við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í sérstaklega í tengslum við mat á umhverfisáhrifum.
Öllum er frjálst að kynna sér skýrsluna og leggja fram athugasemdir og ábendingar. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.
Frestur til að gera athugasemdir er til 29. júlí 2011.
Tillögu að matsáætlun má nálgast hér.