1.1.0001 29.11.10

Kísilmálmverksmiðja í Þorlákshöfn í Ölfusi

Kynning á tillögu að matsáætlun

H011

Þorlákshöfn, Ljósmynd: © Mats Wibe Lund 2006

Mannvit hf. hefur fyrir hönd Thorsil ehf. sent tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar til kynningar. Í tillögunni er fjallað um kísilmálmverksmiðju sem á að framleiða allt að
60.000 tonn af kísilmálmi (metallurgical grade silicon) á ári í tveimur ofnum. Kísilmálmur er yfir 98% hreinn kísill. Kísilmálmurinn sem áformað er að framleiða í verksmiðju
Thorsils ehf., verður seldur úr landi til fyrirtækja sem starfa í efnaiðnaði og málmiðnaði.

Áformað er að reisa verksmiðjuna á 26 hektara lóð á iðnaðarsvæði sem Sveitarfélagið Ölfus er að skipuleggja við Suðurstrandarveg, rúmlega 4 km vestan við Þorlákshöfn.
Kynningartíminn stendur til 6. desember 2010.  Allir geta gert athugasemdir við tillöguna og senda þær á Skipulagsstofnun..

Erindið  hefur verið sent eftirtöldum aðilum til umsagnar: Sveitarfélaginu Ölfusi, Brunamálastofnun, Fornleifavernd ríkisins, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Umhverfisstofnun og Vinnueftirliti ríkisins. Frestur þeirra til að skila umsögnum til Skipulagsstofnunar er til 6. desember 2010 og er ákvörðunar Skipulagsstofnunar að vænta 17. desember 2010.

 

Tillaga Skipulagsstofnunar