Sjá nánar
23.9.2009
Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II
Tillaga að matsáætlun
Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, í Þingeyjarsýslu.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og má nálgast tillögu að matsáætlun hér á síðunni. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir til Skipulagsstofnunar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 12. október 2009.
Tillögu að matsáætlun má nálgast hér.