Tillaga að matsáætlun
Orkuveitan áformar nýtingu jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun, í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Framkvæmdin er matsskyld skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og hér á síðunni má nálgast tillögu að matsáætlun. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir.
Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.
Frestur til að gera athugasemdir er til 20. apríl 2009.
Tillögu að matsáætlun má nálgast hér