Brunatækni
Brunatækni
Mannvit veitir arkitektum, verktökum og fasteignafélögum brunatæknilega ráðgjöf, gerir úttektir á brunavörnum bygginga, ekki síst í tengslum við endurbætur á eldri byggingum, og tryggir að reglum og lagaákvæðum sé fylgt.
Að mörgu er að hyggja í brunahönnun, svo sem brunaeiginleikum byggingarefna, skiptingu bygginga í bruna- og reykhólf, flóttaleiðum, brunamótstöðu burðarvirkja, hættu á eldútbreiðslu og þörf á brunaviðvörunarkerfum og slökkvibúnaði.
Sérfræðingar okkar sinna áhættu- og brunavarnagreiningum vegna bygginga- og skipulagsmála og áhættugreiningum í tengslum við iðnað og iðnaðarferla og samgöngumál. Sérstakt þverfaglegt teymi, skipað sérfræðingum í brunatækni, jarðtækni og byggingartækni, er t.d. starfandi varðandi öryggismál jarðganga.