Eigið eldvarnareftirlit
Eigið eldvarnareftirlit
Brunavarnir í nútíma byggingum byggjast að mestu leyti á því sem kallað hefur verið aktívar brunavarnir. Þá er átt við að ýmis konar flókin kerfi og búnaður bregðist við, komi upp eldur. Brunaviðvörunarkerfi og vatnsúðakerfi eru dæmi um slíkan búnað. Öryggi stórra og meðalstórra bygginga byggjast að miklu leyti á því að þessi búnaður sé í lagi og virki rétt þegar á reynir. Ef hann gerir það ekki er voðinn vís. Því er reglulegt eftirlit og viðhald grundvallaratriði til að geta treyst því að allt sé í lagi.
Nokkrar staðreyndir um eigið eldvarnareftirlit:
- Samkvæmt lögum ber öllum eigendum og forráðamönnum fyrirtækja að hafa eigið eldvarnareftirlit.
- Með því að taka upp eigið eldvarnareftirlit minnkar stórlega hættan á því að upp komi eldur í þínu fyrirtæki og ef eldur verður laus minnka einnig líkur á mannskaða, rekstrarstöðvun og eignatjóni.
- Eigið eldvarnareftirlit kemur í veg fyrir óþarfa sóun fjármuna.
- Eigið eldvarnareftirlit tryggir traust samband við eldvarnaryfirvöld.
- Eigið eldvarnareftirlit bætir rekstaröryggi fyrirtækja. Mörg fyrirtæki koma rekstrinum ekki á réttan kjöl eftir áfall eins og eldsvoða. Ástæðan er sú að meðan á rekstrarstöðvun stendur geta mikilvægir markaðir tapast og tryggingar bæta ekki slíkt tjón.
Mismunandi þarfir fyrirtækja
Fyrirtæki eru misstór og þess vegna eru þarfir þeirra fyrir eftirlit mismiklar. Lítil fyrirtæki í litlu húsnæði geta afgreitt sitt eftirlit á einfaldan hátt en stærri fyrirtæki þurfa meira til.
Löggjafinn gerir ráð fyrir að á hverjum vinnustað sé kosinn öryggistrúnaðarmaður. Eðlilegt er að hann hafi umsjón með eldvarnareftirliti vinnustaðarins.
Meðfylgjandi flæðirit sýnir þær leiðir, sem mismunandi stór fyrirtæki geta farið við ákvörðun um eigið eldvarnareftirlit. Það fer síðan eftir tegund starfsemi og skilgreiningum í byggingarreglugerð hvernig stærðarflokkun er ákveðin.
Þjónusta Mannvits.
Verkfræðistofan Mannvit hefur á að skipa sérfræðingum sem hafa áratuga reynslu við mat á brunavörnum mannvirkja og brunahönnun. Einnig búa þeir yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu við gerð áhættugreininga og áhættumats.
Við getum því aðstoðað bæði lítil og stór fyrirtæki, sem vilja taka upp eigið eldvarnareftirlit og ráðlagt þeim hvernig best er að standa að innleiðingu þess.
Fyrsti fundur sérfræðings Mannvits með viðskiptavini, þar sem þjónustan er kynnt og honum ráðlagt um fyrirkomulag eftirlitsins, er án endurgjalds.