Hljóðvist bygginga

Hljóðvist er mikilvægur þáttur í hönnun hverrar byggingar. Rétt uppbygging og frágangur veggja og gólfa sem og glugga og hurða tryggir fullnægjandi hljóðeinangrun. Ákveðin rými svo sem tónlistar- og fyrirlestrarsalir, skólastofur ofl. kalla á sérstaka hljóðhönnun til þess að hljómburður sé sem bestur. Þess utan þarf í flestum rýmum að koma fyrir einhvers konar hljóðdeyfingu svo koma megi í veg fyrir bergmál, til að tryggja að ómur sé hæfilegur fyrir notkun rýmisins, til þess að talskilningur sé sem bestur og upplifun fólks sé góð. Þá eru ýmis önnur atriði sem huga þarf að við hönnun bygginga svo sem frágangur á lögnum og tækjabúnaði, hönnun hljóðkerfa ofl.