Umferðahávaði

Einn helsti hávaðavaldur nútímasamfélags er umferð og er umferðarhávaði ríkjandi í þéttbýli. Getur þetta oft valdið miklu ónæði og er því mikilvægt að takmarka umferðarhávaða eins og kostur er. Til þess að tryggt sé að umferðarhávaði sé innan leyfilegra marka þarf að framkvæma hávaðamat, enda kveða reglugerðir á um slíkt. Slík hávaðamöt eru þá notuð til hönnunar hávaðavarna, hljóðeinangrunar húsa og jafnvel skipulags hverfa. Hávaðamöt eru einnig framkvæmd vegna ýmissa annarra hávaðagjafa eftir því sem þörf er á.
Við gerð umhverfismats þarf yfirleitt að framkvæma hávaðamat þar sem vægi þess ræðst af eðli þess sem skoðað er.