Efnaferli
Efnaferli
Mannvits hefur áralanga reynslu af ráðgjöf í efnaverkfræði og hefur fyrirtækið sinnt margvíslegum og krefjandi verkefnum.
Sérfræðingar Mannvits tóku þátt í þróun og byggingu einu rafstöðvar sinnar tegundar í heiminum sem nýtir Kalina tækni til að framleiða raforku úr heitu vatni. Á Nesjavöllum er unnið að verkefni með hitakærar örverur sem miklar vonir eru bundnar við að geti dregið úr eða eytt gasi frá jarðvarmaorkuverum. Þá má nefna ammoníakbirgðastöðvar fyrir Áburðarverksmiðjuna og Akzo Nobel í Svíþjóð.
Í tengslum við umhverfisvæna orkugjafa og orkutækni hefur Mannvit sinnt fjölþættum verkefnum vegna nýtingar hauggass til framleiðslu rafmagns og metans. Mannvit tók einnig þátt í verkefnum sem tengjast framleiðslu lífdísils, lífetanóls og vetnis.
Loks má nefna jarðgerð úr lífrænum úrgangi og sorpi sem og gasvinnslu úr lífrænum úrgangi frá landbúnaði, sorpi o.fl. Í undirbúningi er jarðgerðarstöð í Eyjafirði og gasgerðarstöð á að rísa á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar:
Teitur Gunnarsson
teitur@mannvit.is
S. 422 3000