Landmælingar

LandmælingarMannvit býður upp á alla hefðbundna landmælingaþjónustu eins og hæðar- og þríhyrninganetsmælingar, landamerkjamælingar, yfirborðsmælingar, færslumælingar og eftirlitsmælingar í byggingum, vegagerð, jarðgöngum, höfnum og öðrum tengdum verkefnum.

Landmælingar eru óaðskiljanlegur hluti framkvæmda og hjá Mannvit starfa reyndir landmælingamenn sem unnið hafa að opinberum og einkaframkvæmdum, bæði stórum og smáum, allt frá vega- og mannvirkjagerð, orkuframkvæmdum, hafnargerð, iðnaðarverkefnum og fleiru.


Mælingamenn Mannvits notast við nýjasta tækja- og hugbúnað frá Trimble þar á meðal GPS-tæki, alstöðvar, stafræn fínhallatæki og hallamálstæki.


Landmælingaþjónusta:

  • Framkvæmdamælingar
  • Yfirborðsmælingar
  • Landamerkjamælingar
  • Reyndarmælingar
  • Færslumælingar
  • Fastmerkjamælingar
  • Hæðarmælingar
  • Útsetningar

 

Helstu verkefni:

Verkkaupi:  Bechtel
Verkefni:  Alcoa Fjarðaál
Þjónusta:  Landmælingar og gagnavinnsla við þríhyrninganetsmælingar, eftirlit og útsetningar við álver Alcoa Fjarðaáls frá 2003 – 2007.


Verkkaupi:  Landsnet
Verkefni:  Háspennulína frá Kröflu til Húsavíkur
Þjónusta:  Yfirborðsmælingar og útsetningar vegna fyrirhugaðrar háspennulínu, 2008.

Verkkaupi:  Landsvirkjun
Verkefni:  Neðri Þjórsá
Þjónusta:  Mæling á yfirborði árinnar, 2008.

Verkkaupi:  Faxaflóahafnir
Verkefni:  Örfirisey færslumælingar
Þjónusta:  Færslumælingar á Grandabryggju, frá 2005 til 2011.

Verkkaupi:  Reykjavíkurborg
Verkefni:  Bygginga- og gatnaframkvæmdir
Þjónusta:  Eftirlitsmælingar í tengslum við bygginga- og gatnafræmkvæmdir.

 

Verkkaupi:  Vegagerðin
Verkefni:  Fáskrúðsfjarðargöng
Þjónusta:  Yfirborðsmælingar fyrirhugaðra jarðganga og vega, 2001.

Nánari upplýsingar:

Tryggvi Jónsson

Tryggvi Jónsson

Framkvæmdastjóri mannvirkja

Netfang: tj@mannvit.is