Vatnamælingar
Mannvit hefur víðtæka þekkingu á sviði vatnamælinga og tengdri rannsóknarþjónustu, sem nauðsynleg er við hönnun og rekstur mannvirkja. Um er að ræða bæði síritun mæligilda sem og handvirkar mælingar, sýnatöku, greiningar og túlkun á mæliniðurstöðum.
Síritun er gerð með stafrænum skráningartækjum sem forrituð eru með hliðsjón af tilgangi mælinga hverju sinni. Almennt eru sjálfvirkar mælistöðvar Mannvits búnar GSM síma þannig að unnt er að safna gögnum sjálfvirkt og fylgjast með framgangi mælinga frá skrifstofu Mannvits.
Auk búnaðar til síritunar hefur Mannvit allan nauðsynlegan búnað til vatnssýnatöku og ákveðinna mælinga á eðlis- og efnaeiginleikum vatns, hita og þrýstingi í borholum, allt að 395°C og 35 MPa. Með sérútbúnu borholumælingaspili og þrýstijöfnunarhylki, er hægt að koma mælitækjum niður í borholur undir þrýstingi.
Á efnarannsóknarstofu Mannvits er unnt að framkvæma efnagreiningar á vatni, en efnagreiningar eru þó keyptar að sé það hagkvæmara. Á sömu rannsóknarstofu er einnig hægt að efnagreina gas úr t.d. jarðhitakerfum og frá urðunarsvæðum.
Vatnamælingar og tengd rannsóknarþjónusta:
Grunnvatn – vatnsveitur, jarðhita- og vatnsaflsvirkjanir, byggingar, sorpurðun
Grunnvatnsmælingar hafa um langa hríð verið hluti af ýmsum verkefnum stofunnar, einkum þeim sem snúa að undirbúningi mannvirkjagerðar en einnig vegna vatnsvinnslu og sorpurðunar. Auk þess að afla gagna um grunnvatnshæð og breytileika hennar yfir árið og milli ára er í mörgum tilvikum mikilvægt að þekkja gæði grunnvatns og hæð skilflatar milli ferskvatns og jarðsjávar. Mögulegt er að sírita ýmsar aðrar mælistærðir en grunnvatnshæð, svo sem vatnshita, sýrustig og súrefnisþörf. Þá hefur Mannvit haft umsjón með sýnatöku og efnagreiningum á grunnvatni, vegna eftirlits með grunnvatni í nágrenni sorpurðunar.
Sírituð gögn um grunnvatnshæð eru notuð við afstillingu grunnvatnslíkana, sem segja fyrir um stefnu grunnvatnsstrauma og forðabreytingar á viðkomandi svæði.
Afkastagreining vatnsbóla er gjarnan gerð með dæluprófi og eru áreiðanlegar samtíma mælingar á grunnvatnshæð einnig forsenda slíkrar greiningar.
Vatnsföll - rennsli, aurburður og ísmyndun – vatnsaflsvirkjanir og vegagerð
Sem dæmi um hefðbundið verkefni á sviði vatnamælinga má nefna mælingar á rennsli og aurburði jökulár á hálendinu. Þær fólu í sér síritun vatnshæðar ásamt handvirkum mælingum á rennsli og magni svifaurs og skriðaurs. Rennsli yfir ákveðinn tíma var reiknað út frá sírituðum vatnshæðum samkvæmt rennslislykli, sem lýsir sambandi rennslis og vatnshæðar á viðkomandi stað. Samband aurmagns og rennslis, aurburðarlykill, var einnig fundið og þannig reiknaður samanlagður aurburður vatnsfallsins yfir ákveðinn tíma. Gögnin voru notuð við mat á framburði árinnar til nærliggjandi miðlunarlóns.
Annað dæmi er eftirlit með ísmyndun í jökulá á hálendinu. Sett hefur verið upp sjálfvirk mælistöð, sem mælir vatnshæð, vatnshita og helstu veðurþætti sem áhrif hafa á ísmyndun í vatnsfalli. Stöðin tekur einnig myndir af ánni með reglulegu millibili. Myndir og gögn eru sótt sjálfvirkt einu sinni á sólarhring. Ætlunin er að nýta gögnin við gerð ísmyndunarlíkans af ánni og fyrirhugaða hönnun veitumannvirkja.
Með samtíma mælingu í hárri upplausn á úrkomu og afrennsli af ákveðnu svæði má meta afrennslisstuðul og samrennslistíma svæðisins, sem eru nauðsynlegar forsendur fyrir góðu mati á hámarksrennsli flóða. Slík gögn eru mikilvæg við hönnun ræsa undir vegi og yfirföll miðlunarlóna vatnsaflsvirkjana.
Sjávarfallamælingar – vegagerð, fráveita
Á annan tug mælistöðva hafa verið settar upp í skemmri tíma, víðs vegar um landið, til síritunar á sjávarhæð. Tilgangur þeirra hefur verið að afla gagna til afstillingar sjávarfallalíkana, meta áhrif vegamannvirkja á sjávarhæð innan þverunar í fjörðum, meta áhrif sjávarhæðar á grunnvatnsstöðu og meta bakvatnsáhrif sjávar í fráveitukerfum.
Fráveitukerfi
Mælingar á rennsli og hitastigi fráveituvatns auk vatnshæðar í yfirfalls- og dælubrunnum hafa verið gerðar í tengslum við skoðun á afköstum og rekstrartruflunum í fráveitukerfum nokkurra sveitarfélaga. Samhliða rennslismælingum hafa einnig farið fram mælingar á grunnvatnshæð, úrkomu og lofthita í nágrenninu. Með slíkum gögnum má með hliðsjón af áætluðu þurrviðrisrennsli meta áhrif grunnvatnsstöðu á rennsli í kerfinu, reikna magn ofanvatns og meta afrennslisstuðla og samrennslistíma mældra svæða.
Jarðhitarannsóknir
Framkvæmdar hafa verið mælingar á hita og þrýstingi með dýpi í borholum. Slíkar mælingar eru gerðar meðan á borun stendur og í borlok til að finna dýpi á heitar æðar og meta afl borholu en jafnframt eru þær algengustu mælingarnar, sem gerðar eru til eftirlits með borholum í rekstri. Mannvit hefur einnig sett upp sjálfvirkt eftirlit með rúmmáli borleðju við boranir ásamt síritun á rennsli úr borholum við dælupróf.