Raforkuflutningur og dreifing

Mannvit býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í hönnun raforkulína og tengivirkja. Fyrirtækið annast jafnframt framkvæmdaeftirlit með lagningu háspennulína og rafstrengja í jörð og veitir ráðgjöf um viðhald þeirra.

Raflínumannvirki, sem nýlega hefur verið unnið að, eru:

  • Vatnsfellslína. 245 kV háspennulína.
  • Fljótsdalslínur 3&4. 420 kV háspennulínur sem flytja orku til álvers Fjarðaáls.
  • Sultartangalína 3. 420 kV háspennulína sem tryggir Norðuráli raforku.

Mannvit býr einnig yfir mikilli reynslu á sviði raforkuverkfræði flutningskerfa og rafveitna

Við önnumst kerfisathuganir af ýmsu tagi, t.d.

  • Álagsflæðiútreikninga.
  • Útreikninga á skammhlaups- og jarðhlaupsstraumum.
  • Útreikninga á spennurisi við jarðhlaup.
  • Athuganir á svipulum yfirspennum í flutningskerfum.

 

Mannvit vinnur að áætlanagerð, hönnun, gerð útboðsgagna, samningagerð, gangsetningu og eftirliti fyrir flutningskerfi og rafveitur.

Nánari upplýsingar:
Ómar Ö. Ingólfsson
omar@mannvit.is
S. 422 3000

Jón Már Halldórsson
jh@mannvit.is
S. 422 3000