Alþjóðlegt samstarf
Alþjóðlegt samstarf
Rannsóknarstofa Mannvits hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Um er að ræða margháttaða starfsemi, m.a. rannsóknarverkefni, vinnu að staðlamálum, ráðgjöf og efnisprófanir.
Umfangsmesta rannsóknarverkefnið, sem Mannvit sinnir á alþjóðlegum vettvangi, er um rannsóknir á alkalískemmdum í steypu en þar er unnið að þróun nýrra prófunaraðferða. Þessar aðferðir eru byltingarkenndar þar sem prófaðir eru strendingar sem steyptir eru úr steinsteypu í stað múrstrendinga eins og nú er gert á Íslandi. Rannsóknarstofan hýsir jafnframt alþjóðlegt setur um alkalírannsóknir en það er samstarfsverkefni 15 sérfræðinga frá 10 þjóðlöndum og þremur heimsálfum.
Rannsóknarstofa Mannvits hefur einnig veitt ráðgjöf og prófað efni vegna framkvæmda við vatnsorkuver á Grænlandi, sprautusteypu fyrir jarðgöng í Noregi og efnisprófanir á norskum steypuefnum.
Til viðbótar þessu hefur starfsfólk rannsóknarstofu Mannvits sótt ráðstefnur og fundi erlendis til kynningar og samráðs.