Jarðtækni
Jarðtækni
Hjá Mannviti eru framkvæmdar allar helstu jarðtækniprófanir. Flestar fara þær fram á hönnunar- og framkvæmdastigi. Hér á landi hafa þær verið algengastar við hönnun og gerð stíflumannvirkja, vega og fyllinga. Með þéttari byggð og aukinni grundun á jarðtæknilega viðkvæmum svæðum, þar sem t.d. sig og ysjun geta átt sér stað, hafa jarðtæknirannsóknir þó færst í aukana.
Jarðtækniprófum má skipta í fimm hluta:
- Flokkun eftir verkfræðilegum eiginleikum.
- Þéttleiki og þjöppun.
- Lekt.
- Sigeiginleikar.
- Skerstyrkur.
JARÐTÆKNIPRÓFANIR
- Á RANNSÓKNARSTOFU
- Kornastærðargreining
- Rakastig
- Kornarúmþyngd
- Rúmþyngd óhreyfðs efnis
- Atterberg mörk
- Proctor ÞJöppun
- Lekt
- Hlutfallsrúmþyngd
- Þríásapróf
- Sigpróf
- Skerboxpróf
Á VERKSTAÐ
- Þjöppupróf með geislatæki (Troxler)
- Plötupróf
- Sandkeilupróf