Vegtækni

Rannsóknarstofa Mannvits hefur áralanga reynslu af vegtækniprófunum.

Öll vegamannvirki eru að meirihluta til úr steinefnum og því eru margvísleg steinefnapróf jafnframt vegtæknipróf. Til viðbótar þeim eru ýmis sértæk próf til að meta styrk og veðrunarþol. Einnig býður rannsóknarstofa Mannvits prófanir á malbiki.

Vegtækniprófanir eru gerðar á öllum framkvæmdastigum, þ.e. á hönnunarstigi, við framleiðslu og við eftirlit með framkvæmdum. Einnig er boðið upp á malbiksprófanir sem nýtast til að hanna þá blöndu sem hentar steinefnum hverju sinni, við eftirlit með framkvæmdum og til að tryggja gæði malbiks.

Samhliða þessu er boðið upp á prófanir og rannsóknir vegna úttekta á ástandi vegamannvirkja sem eru í notkun.

VEGTÆKNI – PRÓF Á STEINEFNI

  • Kornastærðargreining
  • Berggreining
    • Handsýni
    • Víðsjá
  • Kornalögun
    • Kleyfnistuðull
    • Lögunarstuðull
  • Brothlutfall
  • Lífrænt innihald
  • Húmusmæling
  • Glæðitap
  • Los Angeles próf
  • Bg stuðull
  • Frostþolspróf
  • Proctorpróf
  • CBR
  • Þjálni- og rýrnunarstuðull
  • Þjöppupróf með geislatæki (Troxler)
  • Sandkeilupróf
  • Plötupróf

VEGTÆKNI – MALBIK

  • Marshall próf
  • Bikinnihald
  • Kornakúrfa