|
|
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir Jarðverkfræðingur á rannsóknarstofu Mannvits. Þorbjörg er sviðsstjóri rannsóknarstofu Mannvits hf. Hún lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá HÍ árið 1988 og M.Sc. í jarðverkfræði frá Strathclyde háskóla, Glasgow, árið 1993. Þorbjörg starfaði við rannsóknir og kennslu hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb), Strathclyde háskóla, HÍ og ERGO Engineering Geology þar til hún gekk til liðs við Mannvit, áður Hönnun, árið 2003. Sérsvið Þorbjargar eru rannsóknir og prófanir á eiginleikum steinefna. Þorbjörg situr í stjórnum Steinsteypufélags Íslands og Sambands íslenskra prófunarstofa. Þorbjörg er jafnframt stundakennari við Háskólann í Reykjavík. |
 |
|
Sveinbjörn Sveinbjörnsson Byggingarverkfræðingur á sviði vatnsaflsvirkjana og verkefnisstjóri á rannsóknarstofu Mannvits. Sveinbjörn lauk B.Sc. prófi í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands 1976 og M.Sc. prófi í byggingarverkfræði frá Lunds Tekniska Högskola í Svíþjóð 1979. Sveinbjörn starfaði sem eftirlitsverkfræðingur hjá Landsvirkjun við byggingu Hrauneyjafossvirkjunar, Sultartangastíflu og Blönduvirkjunar, hjá Rb og hjá Harza Engineering í Venezuela. Í árslok 1993 réðst hann til Hönnunar, nú Mannvit. Sérsvið Sveinbjörns eru steypuforskriftir fyrir sértækar aðstæður, að undangengnum steypuefnisrannsóknum. |
 |
|
Dr. Gísli Guðmundsson Jarðefnafræðingur á sviði jarðhitarannsókna hjá Mannviti og verkefnisstjóri á rannsóknarstofu Mannvits. Gísli lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1983, M.Sc. í jarðefnafræði frá Arizona State University, USA árið 1988 og Ph.D. í jarðefnafræði árið 1992 frá sama skóla. Gísli starfaði sem sements- og steinsteypusérfræðingur hjá Rb þar til hann hóf störf hjá Mannviti, áður Hönnun, við steypurannsóknir og byggingaeftirlit árið 2004. Sérsvið Gísla eru rannsóknir á endingu steinsteypu, meðal annars með tilliti til tæringarhættu, veðrunarþols og alkalívirkni.
|
 |
|
Dr. Børge Johannes Wigum Jarðverkfræðingur á rannsóknarstofu Mannvits. Børge lauk B.Sc.prófi í jarðfræði frá HÍ árið 1988, jarðverkfræði frá NTH í Þrándheimi 1990 og Ph.D. frá sama skóla 1995. Børge rak eigið fyrirtæki á Íslandi undir nafninu ERGO Engineering Geology ehf. þar til hann hóf störf hjá Hönnun, nú Mannvit, árið 2003. Sérsvið Børges eru rannsóknir á alkalívirkni. Børge er einnig prófessor við Háskólann í Þrándheimi og hefur hann verið afar virkur í alþjóðlegu samstarfi og á sæti í fjölmörgum alþjóðlegum nefndum.
|

|
|
Eyþór Bjarnason Múrari, rannsóknarmaður. Eyþór lauk sveinsprófi í múverki frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1998. Eyþór hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á flestum steinefna- og steinsteypuprófunum rannsóknarstofunnar sem og sýnatöku í mörkinni. Hann starfaði einnig tímabundið sem fulltrúi SIKA á Íslandi. Eyþór hefur starfað á rannsóknarstofu Mannvits, áður Hönnun, frá árinu 2002.
|

|
|
Guðrún Eva Jóhannsdóttir Jarðfræðingur á rannsóknarstofu Mannvits. Guðrún Eva lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og M.Sc. í jarðfræði frá sama skóla árið 2007. Guðrún hefur m.a. sinnt öllum helstu steinefna-, jarðtækni- og vegtækniprófunum á rannsóknarstofu Mannvits. Guðrún Eva starfaði sem rannsóknarmaður við Háskóla Íslands áður en hún hóf störf á rannsóknarstofu Mannvits, áður VGK-Hönnun, árið 2007.
|

|
|
Sigurjón Árnason Húsasmíðameistari, rannsóknarmaður. Sigurjónlauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1978 og varð húsasmíðameistari árið 1982. Sigurjón hefur m.a. sinnt og verkstýrt öllum helstu prófunum á rannsóknarstofu Mannvits og hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á flestum þeim prófunum sem gerðar eru hjá stofunni. Að auki hefur hann bæði þekkingu og reynslu af sýnatöku í mörkinni. Hann hefur starfað á rannsóknarstofu Mannvits, áður Hönnun , frá árinu 1995.
|

|
|
Sóley Unnur Einarsdóttir Jarðfræðingur á rannsóknarstofu Mannvits. Sóley Unnur lauk B.Sc. í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 2004. Sóley Unnur hefur sinnt og verkstýrt öllum helstu steinefna-, steinsteypu- og sementsprófunum á rannsóknarstofu Mannvits. Sóley Unnur lagði grunninn að safni allra verklýsinga rannsóknarstofunnar og hefur komið að innleiðingu fjölmargra nýrra prófunaraðferða. Hún hefur starfað hjá rannsóknarstofu Mannvits, áður Hönnun, frá árinu 2004.
|

|
|
Kristinn Magnússon Byggingartæknifræðingur á rannsóknarstofu Mannvits á Akureyri. Kristinn lauk B.Sc. í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009. Kristinn hóf störf hjá Mannviti árið 2008 og starfar á Akureyri. Sérsvið hans er vegtækni- og steinefnarannsóknir.
|
 |
|
Haraldur Kristófer Haraldsson Byggingartæknifræðingur á sviði framkvæmdaeftirlits og verkefnisstjóri á rannsóknarstofu. Haraldur lauk B.Sc. í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands árið 1983. Haraldur starfaði áður sem deildarstjóri rannsóknarstofu hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og hefur áratuga reynslu af steinsteypu-, steinefna-, vegtækni- og stálprófunum. Hann hóf störf hjá VGK-Hönnun, nú Mannvit, árið 2007. Sérsvið hans er steinsteypu-, vegtækni-, steinefna og stálprófanir.
|