Steinefni

Framleiðslu- og framkvæmdaeftirlit
  • Aðstoð við innleiðingu á kerfi vegna framleiðslueftirlits hjá steinefnaframleiðendum.
  • Reglubundnar prófanir vegna framleiðslueftirlits á CE-merktum vöruflokkum hjá steinefna-framleiðendum.
  • Tilfallandi eftirlitsprófanir vegna ýmissa framkvæmda:
    • Flugstoðir vegna flugvallaframkvæmda um allt land.
    • Ístak vegna mannvirkja um allt land.
    • Vegna Reykjanesbrautar.
    • Verktakar Magni vegna ýmissa vegaframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu.

Steyputækni

Steypuefnisrannsóknir
Áhersla er lögð á að hanna steinsteypu með tiltekna eiginleika sem hentar sértækum umhverfisaðstæðum. Þessum verkefnum lýkur með verklýsingum og hönnunarforskriftum. Dæmi um verkefni:
  • Fyrirhugaðar Hvamms-, Holta og Urriðafossvirkjanir í Neðri-Þjórsá, fyrir Landsvirkjun.
  • Ufsarstífla og Hraunaveita vegna Kárahnjúkavirkjunar, unnið fyrir Landsvirkjun.
  • Virkjanaframkvæmdir við Qurlortorsuaq og Sisimiut á Grænlandi, unnið fyrir Ístak.
  • Sprautusteypa fyrir jarðgöng í Noregi, unnið fyrir Ístak.
  • Steypuefnisleit vegna álvers Fjarðaáls við Reyðarfjörð, unnið fyrir Fjarðaál.
  • Fyrirhuguð virkjun við Búðarháls, unnið fyrir Landsvirkjun.

Framleiðslu- og framkvæmdaeftirlit
Áhersla erlögð á að steinsteypan standist fyrirfram ákveðnar kröfur. Dæmi um verkefni:
  • Þriggja ára samfellt framkvæmdaeftirlit vegna álvers Fjarðaáls við Reyðarfjörð.
  • Ufsastífla og Hraunaveita vegna Kárahnjúkavirkjunar, unnið fyrir Arnarfell.
  • Framkvæmdaeftirlit fyrir m.a. Faxaflóahafnir, Vegagerðina, ýmis bæjar- og sveitarfélög eins og Reykjavík, ýmsa verktaka o.fl.
  • Framleiðslueftirlit fyrir ýmsa framleiðendur steinsteypu.

Jarðtækni

Fyrirhugaðar jarðstíflur vegna Hvamms-, Holta og Urriðafossvirkjana í Neðri-Þjórsá, unnið fyrir Landsvirkjun. Meðal annars voru prófaðir eftirfarandi eiginleikar:
  • Þjöppun og lekt jarðefna.
  • Styrkur jarðefna, mælt með þríásaprófun.
  • Sigeiginleikar.
Ýmsar prófanir á undirbúningsstigi og vegna framleiðslu- og framkvæmdaeftirlits:
  • Þjöppun og lekt jarðefna. Unnið fyrir ýmsa aðila, m.a. Vegagerðina.
  • Sigeiginleikar. Unnið fyrir ýmsa aðila, m.a. bæjar- og sveitarfélög.

Vegtækni

Framleiðslu- og framkvæmdaeftirlit:
  • Eftirlit með malbiksframleiðslu, unnið fyrir Hlaðbæ Colas vegna lengingar Akureyrarflugvallar og vegna vegtengingar Héðinsfjarðarganga.
  • Eftirlit með malbiksframleiðslu fyrir Norðurbik og Akureyrarbæ.
  • Ýmsar steinefnaprófanir, m.a. til að meta styrk, slit og veðrunarþol burðar- og slitlagsefna fyrir ýmsar framkvæmdir, m.a. vegna breikkunar Reykjanesbrautar og ýmsar framkvæmdir víða um land. Að mestu leyti unnið fyrir Vegagerðina en einnig fyrir verktaka og efnisframleiðendur.

Prófanir á stáli

  • Ákvörðun á flotmörkum, togstyrk og brotlengingu á bendistáli, bendinetum, spennistáli, stálsýnum úr ýmsum prófílum og á kopar og koparblöndum. Unnið fyrir ýmsa verkkaupa, m.a. ÍAV.