Samgöngur, veitur og skipulag

Mannvit veitir alhliða ráðgjöf í umhverfismálum og er þar í fararbroddi í krafti þeirrar þekkingar sem sérfræðingar fyrirtækisins hafa byggt upp á undanförnum árum í mati á umhverfisáhrifum, skipulagsmálum, umhverfisvöktun, grænu bókhaldi og gerð starfsleyfa.

Með uppbyggingu í þéttbýli og aukinni vitund íbúa um nágrenni sitt verða umferðar- og skipulagsmál sífellt umfangsmeiri og flóknari. Sérfræðingar Mannvits veita alhliða ráðgjöf á sviði samgönguskipulags, m.a. með umferðarspám og umferðarhermun.

Hjá fyrirtækinu er mikil þekking á gerð hvers konar samgöngumannvirkja, s.s. jarðganga, flugvalla, hafna, vega og brúa.

Mannvit býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á hönnun veitumannvirkja, hvort sem um er að ræða hitaveitur, vatnsveitur, gagnaveitur eða fráveitur, sem og við gerð dælustöðva og útrása.

Nánari upplýsingar:
Tryggvi Jónsson
tj@mannvit.is
S. 422 3000