Umferð og skipulag

Transportation PlanningMannvit býr yfir mikilli þekkingu á sviði umferðar- og samgönguskipulags og veitir heildarráðgjöf um þessi mál.

Fólksfjölgun og uppbygging kallar á vandað samgönguskipulag í eldri og nýrri byggð til að tryggja lífsgæði og hreyfanleika íbúa. Um leið og gott flæði og aðgengi ökutækja er tryggt þarf að greina flæði gangandi og hjólandi vegfarenda, umferðaröryggi og hljóðvist.

Sérfræðingar fyrirtækisins í umferðar- og skipulagsmálum fást við fjölbreytt verkefni. Sem dæmi má nefna umferðarspár og umferðarhermun vegna skipulagstillagna, úrbætur á umferðarflæði, hönnun bílastæðahúsa, greiningu á ferðavenjum, skipulag göngu- og hjólreiðastíga og hönnun íbúðahverfa með 30 km hámarkshraða.

Mannvit veitir sveitarfélögum og skipulagshöfundum alhliða aðstoð við gerð aðal- og deiliskipulags. Áhrif mismunandi skipulagsvalkosta á bílaumferð eru metin með reiknilíkönum og ráðgjöf veitt við skipulag gatna, almenningssamgangna og göngu- og hjólreiðaleiða.

Nánari upplýsingar:

Tryggvi Jónsson

Tryggvi Jónsson

Framkvæmdastjóri mannvirkja

Netfang: tj@mannvit.is

Þorsteinn R. Hermannsson

Þorsteinn R. Hermannsson

Fagstjóri - samgöngur

Netfang: th@mannvit.is