Umhverfismál
Umhverfismál
Mannvit sérhæfir sig í þverfaglegri þjónustu á sviði umhverfismála sem kallar á sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum, s.s. líffræði, jarðfræði, landfræði, efnafræði, umhverfisfræði skipulagsfræði og verkfræði.
Helstu verkefnin tengjast mati á umhverfisáhrifum stóriðju, vatnsafls- og jarðhitavirkjana, háspennulína, efnistöku og samgöngumannvirkja. Ávallt er reynt að finna lausnir sem draga úr eða bæta fyrir hugsanleg umhverfisáhrif framkvæmda, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma.
Verkefni á sviði umhverfismála tengjast einnig umhverfismati skipulagsáætlana og annarra matskyldra áætlana.
Sérfræðingar á sviði umhverfismála veita einnig ráðgjöf og hafa umsjón með umhverfisvöktun og rannsóknum sem tengjast mengandi starfsemi og matsskyldum framkvæmdum. Þeir hafa einnig reynslu í skýrslugerð fyrir grænt bókhald fyrirtækja og annast endurskoðun græns bókhalds.
Nátengd mati á umhverfisáhrifum er ritun starfsleyfa og annarra leyfa er tengjast framkvæmdum. Ráðgjafar fyrirtækisins hafa víðtæka reynslu og þekkingu á þessu sviði.
Nánari upplýsingar:
Auður Andrésdóttir
audur@mannvit.is
S. 422 3000
Axel Valur Birgisson
axel@mannvit.is
S. 422 3000