Hugbúnaður og kerfisfræði
Hugbúnaður og kerfisfræði
Mannvit hefur í gegnum árin byggt upp reynslu á hugbúnaðarsviði er varðar hverskonar ráðgjöf við innkaup s.s. þarfagreiningu, útboð og innleiðingu á hugbúnaðarlausnum og hverskonar tölvukerfum. Mannvit hefur einnig unnið að kerfisgreiningum, kerfisverkfræði og hugbúnaðarþróun sérstaklega er varðar sérhæfðan hugbúnað tengdan stjórnbúnaði, gagnagrunnum og upplýsingaflæði í stærri fyrirtækjum. Þar sem upplýsingar úr mismunandi kerfum eru tengdar saman.
Mannvit hefur einnig unnið að verkefnum er varða gagnaöryggi og tryggingu á upptíma tölvu- og fjarskiptakerfa og má þar nefna að fyrirtækið hefur komið að hönnun á mörgum af stærstu tölvusölum og gangaverum sem sett hafa verið upp á Íslandi. Mannvit getur metið á faglegan hátt áhættur og ógnanir í rekstri tölvusala og gagnavera enda er innan fyrirtækisins sérþekking á öllum sviðum er varða þennan resktur auk sérfræðinga í áhættugreiningu.
Innan Mannvits er til staðar mikil sérhæfing er varðar Íslenskar aðstæður og tækni s.s. landupplýsingar, jarðhitanýtingu og rannsóknir. Á grunni þessarar þekkingar er fyrirtækið í stakk búið til að vinna sérhæfðar hugbúnaðarlausnir fyrir viðskiptavini sem byggja á verkfræðiþekkingu Mannvits.