Búrfellsvirkjun

Búrfellsstöð er 270 MW aflstöð innst í Þjórsárdal. Rekstur stöðvarinnar hófst 1969 en á árunum 1997-98 voru sett ný vatnshjól í alla hverflana. Við það jókst afl Búrfellsstöðvar úr 210 í 270 MW.

Hellisheiðarvirkjun

Hellisheiðarvirkjun nýtir jarðvarma til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu á sunnanverðu Hengilssvæðinu í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Áætlað er að byggja rafstöð sem framleiðir 300 MWe af rafmagni og varmastöð sem afkastar allt að 400 MWth.

Nesjavallavirkjun

Framkvæmdir við Nesjavallavirkjun hófust 1987. 29. september árið 1990 var orkuverið formlega gangsett. Nesjavallavirkjun framleiðir nú 120 MW af rafmagni og 300 MW í varmaorku, jafngildir 1640 1/sek af 83° C hita. Á Nesjavöllum hafa verið boraðar 25 holur, dýptin er á bilinu 1.000 til

Sigölduvirkjun

Rekstur Sigöldustöðvar hófst árið 1977. Hún var reist á árunum 1973-77 af Landsvirkjun í kjölfar virkjunar við Búrfell og er því önnur vatnsaflsstöðin í röðinni á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Í stöðinni eru þrjár 50 MW vélasamstæður sem voru gangsettar á árunum 1977-1978.

Vatnsfellsvirkjun

Framkvæmdir hófust við Vatnsfellsvirkjun sumarið 1999. Framkvæmdir stóðu yfir í rúm tvö ár og var fyrri vél virkjunarinnar gangsett í nóvember 2001. Afl stöðvarinnar er 90 MW og nýtir hún 65 metra fallhæð. Með tilkomu virkjunarinnar jókst orkugeta raforkukerfisins um 430 GWst á ári.