
Hvatningarviðurkenningar Álklasans 2021
Fimm nemendaverkefni hlutu hvatningarviðurkenningar á Nýsköpunarmóti Álklasans 2021 í Háskólanum í Reykjavík. Mikil gróska nýsköpunarverkefna er á sviði áliðnaðar. Verkefnin sem hluti viðurkenningar eru á sviði, hringrásarhagkerfis, snjallvæðingar og umbóta við framleiðsluferla. Mannvit er einn af stuðningsaðilum verðlaunanna og óskar viðurkenningarhöfum innilega til hamingju.
Hvatningarviðurkenningar Álklasans voru afhentar fimm nemendaverkefnum sem öll tengjast áli á einn eða annan hátt. Nemendurnir sem fengu viðurkenningu í ár voru:
- Aðalsteinn Bragason, Ingvar Birgir Jónsson og Sverrir Ólafsson, frá Stóriðjuskóla Ísal, fyrir verkefnið: Straummælingar skauta framkvæmdar úr skautskiptitækjum.
- Áslaug Guðmundsdóttir, frá Háskóla Íslands, fyrir verkefnið: Straummælingar forskauta í kerskálum álvera.
- Berglind Höskuldsdóttir, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið: Innleiðing á rauntímaefnagreiningu í kerskála álvers.
- Diljá Heba Petersen, frá KTH og Háskóla Íslands, fyrir verkefnið: Í átt að hringrásarhagkerfi: Meðhöndlun úrgangs í íslenskum orkufrekum iðnaði.
- Sarah Elizabeth Di Bendetto, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið: Hermun á loftstreymi og varmaflutningi undir yfirbyggingu rafgreiningarkers fyrir álframleiðslu.
Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna voru að þessu sinni; Mannvit, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Norðurál, Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Rio Tinto á Íslandi, Samál og Samtök iðnaðarins. Hægt er að horfa á upptöku frá Nýsköpunarmóti Álklasans með því að smella hér