
Sjálfbærar fjárfestingar - hver er ávinningurinn?
Fimmtudaginn 20. september 2018 kl. 08:30 bjóða Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) og Mannvit til morgunverðarfundar á Grand Hótel um sjálfbærar fjárfestingar, hver er ávinningurinn?
Neel Strøbæk, framkvæmdastjóri sjálfbærni og samfélagsábyrgðar hjá Ramboll, Ásgeir Kröyer frá Fossum mörkuðum og Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri markaða Landsbankans og stjórnarformaður Iceland SIF munu leitast við að svara spurningum á við:
- Felst beinn fjárhagslegur ávinningur í sjálfbærni?
- Eru tækifæri fyrir hagstæðari fjármögnun?
- Hver er þróunin í slíkum fjárfestingakostum á Norðurlöndunum?
Fundurinn er opinn öllum og léttur morgunverður í boði frá kl.8:00.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á FUNDINN
Dagsetning: Fimmtudaginn 20.sept 2018
Staðsetning: Grand Hótel, Gullteigur
Tímasetning: kl. 8:30 - 10:00.
Dagskrá:
08:00 Léttur morgunverður í boði
08:30 Opnunarávarp forstjóra Mannvits og setning fundarstjóra SFF
- Innleiðing stefnu um ábyrgar fjárfestingar og stofnun samtaka um ábyrgar fjárfestingar?
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Markaða Landsbankans og stjórnarformaður Iceland SIF
- Fjármögnunartækifæri sjálfbærra verkefna og græn skuldabréf
Ásgeir Kröyer, Fyrirtækjaráðgjöf Fossa markaða
- Ávinningur sjálfbærni og reynslan á Norðurlöndum
Neel Strøbæk, Framkvæmdastjóri sjálfbærni og samfélagsábyrgðar hjá Ramboll
10:00 Fyrirspurnir, umræður og fundarlok