Brýr
Sérfræðingar Mannvits á sviði brúarhönnunar og brúarsmíði hafa áratugareynslu og fyrirtækið býður uppá ráðgjöf við frumáætlanir, flóðaspár og rennslisspár, hönnun og hönnunarrýni, endurbætur, ritun útboðsgagna, skipulagningu vinnusvæðis og verkeftirlit.

Sérþekking á brúarhönnun
- Steinsteyptar brýr
- Samvirkandi stál-steypu bogabrýr
- Stálbrýr
- Undirgöng
- Ferjulægi
- Göngubrýr
Á byggingarsviði Mannvits eru sérfræðingar af helstu sviðum byggingarverkfræði, þ.m.t. um alla þætti brúarhönnunar og hönnunar fyrir steypu-, stál og timburmannvirki ásamt sérfræðingum á sviði steypuframleiðslu,gæðaeftirliti og byggingarefnisrannsóknum.
Sérþekking á sviði brúarhönnunar ásamt samþættingu umhverfis-, jarðtæknirannsókna og verkeftirlits tryggir viðskiptavinum okkar áhættuminni og hagkvæmari framkvæmd með áherslu á að halda tíma- og kostnaðaráætlun.
Tengiliðir
Torfi G. Sigurðsson
Byggingarverkfræðingur M.Sc., Vatnsaflsvirkjanir
torfigs@mannvit.is
+354 422 3702