
Innleiðing sjálfbærnistefnu hjá fyrirtækjum - morgunfundur
Framkvæmd sjálfbærnistefnu, áskoranir og reynslusögur sér...
Heimsmarkmiðin eru leiðarvísir að sjálfbærari heimi árið 2030. Þau eru markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og hafa ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki um allan heim tileinkað sér þau. Mannvit hefur tileinkað sér Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og bíður viðskiptavinum fjölbreytta þjónustu tengda þeim.
Mannvit hefur í vaxandi mæli unnið með heimsmarkmiðin bæði í starfsemi innanhúss sem og við ráðgjöf. Meðal þeirrar þjónustu sem Mannvit býður upp á er stefnumótun, jafnt fyrir fyrirtæki, stofnanir sem og sveitarfélög, sem byggir á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og felur í sér markmiðasetningu, mælikvarða og aðgerðaráætlun. Þá býður Mannvit einnig upp á kynningar og vinnustofur sem byggja á Heimsmarkmiðunum.
Vinnustofurnar hafa það að markmiði að þátttakendur öðlist grunnþekkingu á heimsmarkmiðunum, verði meðvitaðri um áhrif sín á þau og geti áttað sig á tækifærum til að gera enn betur. Vinnustofurnar eru sérsniðnar að hverjum hópi fyrir sig og aðlagaðar að þörfum verkkaupa. Niðurstöður vinnustofa og kynninga er hægt að nýta til áframhaldandi markmiðasetningar eða stefnumótunar innanhúss.
"Vinnustofur eru kjörin leið við innleiðingu Heimsmarkmiðanna í rekstur og stefnumótun"
Sandra Rán, sjálfbærniverkfræðingur.
Markmið Mannvits er að innleiða heimsmarkmiðin í daglegan rekstur, bæði innanhúss og hjá viðskiptavinum sínum. Mannvit hefur reynslu og þekkingu til þess að vinna markvisst að því að innleiða heimsmarkmiðin inn í stefnu fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á skilvirkan hátt. Það getur reynst mörgum erfitt að ná utan um hugtakið sjálfbærni og að innleiða sjálfbærni inn í sinn rekstur. En með skilgreiningu og samhengi Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna verður strax auðveldara að ná utan um hugtakið og sjá hvernig markmiðin samræmast stefnu hvers fyrirtækis fyrir sig.
Auk þess er afar hjálplegt fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög að nýta sér þjónustu eins og þá sem Mannvit býður upp á, og fá aðstoð við að skilgreina þau heimsmarkmið sem viðkomandi aðili vinnur nú þegar eftir, sem og hvað má gera til þess að reksturinn samræmist enn betur heimsmarkmiðunum. Með því að setja heimsmarkmiðin í samhengi þá verða þau áþreifanlegri bæði fyrir stjórnendur fyrirtækja sem og starfsfólk, og þá verður ósjálfrátt auðveldara að vinna eftir þeim og innleiða þau í auknum mæli í dagleg störf og rekstur. Slíkt má gera með vinnustofu líkt og Mannvit hefur unnið að með Kópavogsbæ og Landsvirkjun, svo dæmi séu tekin.
Umhverfisverkfræðingur M.Sc. Umhverfismál og sjálfbærni
mas@mannvit.is
+354 422 3026
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærniverkfræðingur
sandra@mannvit.is - 422 3000.