
Hönnunarsamkeppni - Hjúkrunarheimili á Húsavík
Tillaga ARKÍS arkitektar í samstarfi við Mannvit hlaut 1....
Mannvit sérhæfir sig í hönnun lagnakerfa og loftræstingar af ýmsu tagi fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinberar stofnanir enda hefur fyrirtækið hlotið verðlaun Lagnafélags Íslands oftar en nokkur önnur verkfræðistofa.
Við bjóðum heildstæða ráðgjöf og eftirlit, hvort sem um er að ræða hefðbundin lagnakerfi og loftræstikerfi eða sérhæfðari verkefni líkt og; olíulagnir, kælikerfi, þrýstiloftslagnir, vatnsúðakerfi eða gasslökkvikerfi.
Sérfræðingar Mannvits hafa hannað lagnakerfi og loftræstikerfi fyrir íbúðar- og iðnaðarhúsnæði, verksmiðjur og verslunarmiðstöðvar bæði heima og erlendis.
Upplýsingalíkön mannvirkja (BIM)
Mannvit býr yfir mikilli þekkingu og reynslu við þrívíddarhönnun og gerð upplýsingalíkana af burðarvirkjum og lagnakerfum. Helsti hugbúnaður sem notaður hefur verið við gerð upplýsingarlíkana (BIM) hjá Mannviti er:
Meðal verkefna í lögnum og loftræstingu má nefna Hörpu, Korputorg, Kauptún 3-7, Holtagarða, stækkun Kringlunnar, Sælandsskóla, FSU, Vörumiðstöð Samskipa, Bakkann Vöruhótel, Íslenska erfðagreiningu og gagnaver Verne á Ásbrú.
Véltæknifræðingur B.Sc. Lagnir og loftræsting
sigurgeir@mannvit.is
+354 422 3118