Kísiljárnverksmiðja Elkem

Mannvit starfar fyrir járnblendiverksmiðjuna Elkem á Íslandi við endurbætur á ýmsum vinnslukerfum og búnaði. Elkem selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Mikið slit er á búnaði verksmiðjunnar vegna álags frá hráefni, hita og umhverfi og því eru endurbætur og viðhald stórir þættir í starfseminni. Miklar kröfur eru gerðar til rekstraröryggis ásamt öryggi starfsmanna. Framkvæmdum þarf að ljúka innan ákveðins tímaramma en með áherslu á öryggi starfsmanna við uppsetningu og notkun búnaðar.

Mannvit-dagur4- _DSC7438.jpg

Mannvit kom að hönnun á deiglustól fyrir útsteypingu kísiljárns í steypubelti verksmiðjunnar. Um er að ræða búnað sem tekur á móti deiglu með málmbráði frá deigluvagni, lyftir henni og hellir málmbráðinu til útsteypingar í steypubelti. Nýi búnaðurinn sparar talsverðan tíma við útsteypingu og fækkar verkþáttum. Þannig eykst öryggi starfsmanna við þessar varasömu aðstæður. Verkefnið kallaði á nána samvinnu milli hönnuðar og notenda búnaðarins en aðlögun fór að hluta til fram eftir að búnaðurinn var tekinn í notkun. Eftir stendur búnaður sem verkkaupi er ánægður með og er notaður í öruggari verksmiðju.

Verksvið

  • EPCM verkefnisstjórn
  • Hönnun
  • Innkaup
  • Stjórnun framkvæmda
  • Öryggis og gæðagát
  • Verkefnisstjórn
  • Verkefnisgát
120.000 tonn 
Framleiðslugeta á ári
3
Verksmiðjuofnar
1979
Gangsetning

„Þegar unnið er með fyrirtæki eins og Elkem er nauðsynlegt að vera tilbúinn að takast á við áskoranir sem upp koma frá degi til dags og þetta hefur okkur tekist hingað til. Góður mælikvarði á farsælt samstarf er stöðugleiki beiðna frá Elkem um að takast á hendur ný verkefni, bæði smá og stór. Samstarfið hefur gengið mjög vel og dagurinn er fljótur að líða, sem er mælikvarði á að það er gaman í vinnunni.“

Sigurður Jónsson og Gunnar Óli Sigurðsson

Hönnun, eftirlit og verkefnisstjórnun