NIL jarðhitavirkjun, Sarulla, Indónesía

NIL 1 og NIL 2 eru hluti af Sarulla jarðhitavirkjuninni sem staðsett er á jarðhitasvæði Silangkitang (“SIL”) og Namora-I-Langit (“NIL”) í  Tapanuli Utara héraði á norðurhluta Sumötru í Indonesíu. NIL 1 og NIL 2 hafa framleiðslugetu 110 MW hvor stöð. Eigandi virkjunarinnar og rekstraraðili er Sarulla Operations, SOL.

 

Hyundai var ráðið sem EPC verktaki fyrir þetta verkefni sem hafði að markmiði að byggja þrjár virkjanir, alls 330 MW. Hyundai réð Mannvit ásamt samstarfsaðila Mannvits í Indónesíu, CBN, sem undirverktaka. Virkjunin nýtir bæði gufu og skiljuvatn til rafmagnsframleiðslu þar sem hita er breytt í orku annars vegar í hefðbundnum bakþrýstihverfli og hins vegar í tvívökva orkuveri, eða svokallaðri ORC vinnslurás. Það er gert til að hámarka nýtni úr jarðhitavökvanum.

Verksvið

  • Yfirferð Hazop greininga
  • Yfirferð og úrbætur á kerfishönnun
  • Yfirferð á vali búnaðar í gufuveitu
  • Yfirferð og endurbætur á virkni stöðvar
2017-2018
Gangsetning
220 MW 
Aflgeta NIL 1 og 2
330 MW 
Uppsett afl