Ny Bø barnaskóli í Noregi

Mannvit sá um forhönnun og gerð útboðsgagna fyrir Nye Bø barnaskólann í sveitarfélaginu Hå kommune í Suður-Noregi. Hå kommune er rótgróið sveitafélag rétt sunnan við Stavanger á vesturstönd Noregs. Þar er nú að rísa um 8.000 m2 skólabygging fyrir 550 nemendur ásamt sérþarfaálmu fyrir 20 nemendur. Skólinn er hugsaður fyrir nemendur  í 1-7 bekk. Mikill metnaður ríkir um bygginguna hjá skólayfirvöldum, verkkaupa og hönnuðum og ber byggingin þess merki. 

Mannvit fékk verkið að loknu ströngu útboðsferli og sá um forhönnun á öllum fagsviðum verkfræðihönnunar, m.a. hönnun á burðarvirki, lögnum, loftræstingu, rafkerfi, hljóðvist, brunakerfi og veitum. Hluti af verkefni Mannvits var útgáfa alútboðsgagna fyrir framkvæmdir verktaka við skólabygginguna og útgáfa útboðsgagna fyrir jarðvinnu og bílastæði. Verkefnið var unnið í samstarfi við arkitektana Ola Roald AS Arkitektur fyrir Hå kommune.

Verksvið

  • Forhönnun verksins
  • Fullnaðarhönnun aðkomuvegar og jarðvinnu
  • Gerð alútboðsgagna
8.000 m² 
Stærð
570
Nemendur
17.500
Íbúar

Það er nokkuð algengt vinnulag við byggingarverkefni í Noregi að bjóða forhönnun út sérstaklega. Forhönnunin getur þá endað í gerð alútboðsgagna og verktakinn ræður til sín hönnuði til að sjá um deilihönnunina. Við erum vanari því hér heima að allir hönnunarfasar séu á einni hendi en Mannvit aðlagast þessu eins og öðru.

Pálína Gísladóttir

Verkefnisstjóri