Urðarbrunnur íbúðir

Hús Bjargs íbúðafélags við Urðarbrunn 33 og 130-132 í Úlfarsárdal, Reykjavík samanstendur af 83 nýjum leiguíbúðum, í heildum 5500 m². Öll verkfræðihönnun var í höndum Mannvit.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna til að halda leiguverði lágu og er þar m.a. horft til fermetrafjölda. Íbúðir eru ekki stórar; stúdíóíbúðirnar í eru 46 m² - 49 m² , tveggja herbergja íbúðirnar eru frá 37 m² - 49 m², þriggja herbergja íbúðir 57 m² - 74 m², fjögurra herbergja eru um 84 m² -95 m² og fimm herbergja íbúðirnar eru um 113 m² .

Urðarbrunnur Bjarg Íbúðafélag

Arkitektahönnun var hjá THG arkitektar en verktakinn var EYKT.

Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2018 og fyrstu íbúðar voru afhentar nýjum leigutökum í ágúst 2019. 
Verklok  voru í apríl 2020.

 

Ljósmyndir: THG Arkitektar

Verksvið

  • Burðarþolshönnun
  • Lagnahönnun
  • Loftræstingarhönnun
  • Raflagnahönnun
  • Brunahönnun
  • Hljóðvistarhönnun
2020
Verklok
83
Íbúðir
20%
Íbúða í eigu Félagsbústaða

Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norænni fyrirmynd.

Vefsíða Bjarg íbúðafélags

www.bjargibudafelag.is

Play

Myndaband af verkstöðu í Urðarbrunni, september 2019